Lyklakerfi

Sami lykill fyrir heimili, vinnustað og hengilása. Yfir 30 ára reynsla, 7.000+ kerfi.

Lyklakerfi, mynd

Sami lykill fyrir heimilið, vinnustaðinn, skápa, hengilása og fleira. Gott lyklakerfi er lykilatriði fyrir fyrirtæki, einstaklinga, húsfélög og stofnanir. Framleiðendur miða við að skipta um lyklakerfi á 15–20 ára fresti, eftir þann tíma er einkaleyfi venjulega útrunnið og þá getur hver sem er fengið lykla hvar sem er. Stór hluti lyklakerfa á Íslandi er úreltur.

Hægt er að framleiða hvaða lyklakerfi sem er eftir nákvæmum þörfum. Dæmi: A-masterlykill gengur að öllum hurðum, B að útihurð og söludeild, C að útihurð, lager og hengilásum, D að ræstingu, útihurð, söludeild og kaffistofu. Við smíðum sama lykilinn fyrir mismunandi sílindra, ávala, euro og hengilása, og getum sett hengilása inn í kerfið.

Einnig framleiðum við „opin“ kerfi fyrir fjölbýli þar sem lyklar eru smíðaðir gegn framvísun lykils. Algengast er að hver íbúi komist inn í sína íbúð auk sameignar.

Við framleiðum lyklakerfi frá KABA (nú DormaKaba) og sjáum um viðhald og aukasmíði í ASSA-kerfi. Lásar er með yfir 30 ára reynslu og þjónustar rúmlega 7.000 lyklakerfi um land allt. Starfsmenn koma á staðinn og aðstoða við útfyllingu kerfisskema, þér að kostnaðarlausu á höfuðborgarsvæðinu (og í gegnum síma/tölvupóst á landsbyggðinni). Engin kerfi eru of lítil og engin of stór.

Nauðsynlegt er að umsjónarmaður húsnæðis viti alltaf nákvæmlega hver er með hvaða lykil.

Af hverju Lásar

Þekking okkar, víðtæk reynsla og þjónusta við stór og smá lyklakerfi er það sem skilur Lása frá öðrum lásasmiðum. Við teljum okkur vera með bestu framleiðsluna, uppsetninguna og þjónustuna. Lásar tóku við lyklakerfisdeild Húsasmiðjunnar árið 2012 og hafa þjónustað kerfin síðan.

Eyðublöð

Fylltu út kerfisskemann og sendu á [email protected], við sendum kostnaðaráætlun til baka. Við mælum með ráðgjöf við útfyllingu fyrir öll stærri kerfi.

Spurningar? Hringdu 510-8888 eða líttu við á Skemmuvegi 4, Kópavogi (blá gata, fyrir neðan BYKO).

Hringdu 510-8888
Til baka í Vörur