Fjarstýringar

Original og eftirmarkaðs fjarstýringar, oft tilbúnar á 15–20 mínútum.

Fjarstýringar, mynd

Við eigum mikið úrval bæði original og eftirmarkaðs fjarstýringa. Fjarstýringu eða aukalykil með fjarstýringu er yfirleitt hægt að gera á 15–20 mín, sumir bílar þurfa lengri tíma. Oft má skilja bílinn eftir að morgni og fá hann síðdegis; stundum þarf að bóka tíma.

Stundum má lengja líf gömlu fjarstýringarinnar með því að skipta bara um skel, yfirleitt mun ódýrara en nýr lykill. Ef örflagan er brotin þarf þó nýjan lykil. Fjarstýringar verða líka rafhlöðulausar; þá þarf að skipta um rafhlöðu. Athugið að tegund rafhlöðu skiptir máli, t.d. henta IKEA-rafhlöður illa í nándarlykla og margar fjarstýringar.

Við mælum gegn því að hafa marga lykla á sömu kippu og bíllykilinn, það er algeng ástæða þess að hann brotnar og að svissinn slitnar óþarflega hratt.

Spurningar? Hringdu 510-8888 eða líttu við á Skemmuvegi 4, Kópavogi (blá gata, fyrir neðan BYKO).

Hringdu 510-8888
Til baka í Vörur