Bíllyklar

Smíði og forritun bíllykla og kubbalykla í langflestar gerðir, oftast samdægurs.

Bíllyklar, mynd

Bíllyklar verða flóknari með hverju ári, svo það getur verið kostnaðarsamt að týna síðasta lyklinum. Við gerum nýja lykla, líka kubbalykla, í langflestar gerðir bíla. Nánast allir bílar frá 1995 eru með ræsivörn: í lykilhausnum er örflaga sem þarf að forrita við tölvu bílsins (þetta tengist ekki fjarlæsingum). Við smíðum bíllykla með eða án flögu, oftast samdægurs, og gerum við læsingar og svissa ef það er vandamálið. Oft má skipta um lykilskel meðan þú bíður.

Nú getum við forritað BMW smart-lykilinn í flestar útgáfur F-gerðarinnar.

Til eru bíllyklar í eldri bíla og fornbíla, og smíða má lykla eftir læsingum eða svissum þótt enginn lykill sé til fyrir.

Lager & landsbyggðin

Lásar býr yfir stórum og fjölbreyttum lager af eftirmarkaðs-bíllyklum og fjölda upprunalegra lykla, eftir því hvað hentar. Við klárum hvert verk samdægurs þegar hægt er, annars næsta virka dag. Við þjónustum líka landsbyggðina (gegn meiri kostnaði): yfirleitt skerum við lykilinn hjá okkur í Kópavogi og sendum á þjónustuverkstæði eða umboð á landsbyggðinni sem forritar hann við bílinn, eða þú sendir okkur tölvuna úr bílnum og við forritum lykilinn beint við hana.

Allir bíllyklar týndir?

Misjafnt er eftir tegundum hvað þarf að gera, en yfirleitt dugar að tengja bílinn við tölvu til að para nýja lykilinn. Í sumum tilfellum þarf að taka tölvuna úr bílnum, þá er verkið kostnaðarsamara. Í flestum tilfellum komum við á staðinn og klárum verkið.

Ferlið hefst alltaf á því að þú sendir okkur beiðni. Við metum hvað þarf og hvað það gæti kostað, sendum þér beiðnina til baka í SMS (með verði) og þú undirritar rafrænt áður en við byrjum. Notast er við kennitölu og símanúmer verkbeiðanda; síðar má skrifa reikninginn á fyrirtæki. Ef lykill finnst eftir undirritun þarf póstur á [email protected], þá hættum við verkinu en gjaldfærum það sem þegar er unnið.

Það sem við gerum

  • Opnum flesta bíla, drögum lykilbrot úr sílindrum og gerum við sílindra og svissa.
  • Smíðum og forritum lykla í flestar gerðir bíla, hvort sem lykill er til eða ekki.
  • Eigum sílindra og svissa í flestar gerðir bíla á lager.
  • Yfir 630 vöruflokkar, röðum lásunum upp fyrir lykilinn þinn.
  • Mikið til af original lyklum með fjarstýringum, einnig fyrir ameríska bíla.
  • Sérpöntum lykla í nær alla bíla og forritum þá.
  • Lögum fasta sílindra (t.d. þegar fjarlæsing er notuð) og gerum þá eins og nýja.
  • Skiptum um slitnar stýriskífur eða sílindra og breytum þeim svo lykillinn þinn passi, komdu með bílinn milli kl. 8 og 11 og fáðu hann sama dag.
  • Bílaopnanir, alhliða lásaviðgerðir, breytingar á sílinder eða svissi og margt fleira.

Hægt er að skipta um skel á langflestum bíllyklum, ef innihaldið á þeim gamla virkar.

Bilaður sviss? Komdu strax

Ef svissinn í bílnum er farinn að haga sér einkennilega borgar sig að koma með bílinn STRAX, það sparar mikinn pening. Þegar svissinn bilar alveg þarf að borga kranabíl og nýjan sviss, og verkið verður mun kostnaðarsamara. Hafðu þó í huga að oft er það lykillinn sem er vandamálið, við sjáum það fljótt, svo komdu við.

Af hverju tökum við ekki óforritaða flögulykla til baka?

Bílar eru nær jafn ólíkir og þeir eru margir og nota mismunandi flögur, stundum innan sama árgangs. Flaga getur læst sér þótt forritun takist ekki, ýmist af því að flagan er ekki rétt eða að forritunarbúnaðurinn er ekki nógu góður. Lyklar fást víða, og oft gildir að því ódýrari sem þeir eru, því lakari eru gæðin: stálið harðara (sem skemmir skerhjól og fræsara) og skelin úr stökkara plasti (lykillinn endist skemur), auk mismunandi tíðna og flagna. Við skoðum ekkert af þessu þegar þú biður okkur eingöngu um að skera lykil, en ef við eigum líka að forrita hann könnum við hvort þetta passi áður en við byrjum, þó er aldrei full trygging fyrir því að forritun heppnist.

Gott að vita

Við seljum að jafnaði aðeins tilbúna bíllykla, skorna og forritaða, svo allt sé eins og á að vera. Óforritaðir flögulyklar eru án ábyrgðar og ekki teknir til baka; í þeim tilfellum mælum við með að kaupa lykilinn hjá umboði. Lykill keyptur erlendis eða á vef: 5.000 kr. aukalega fyrir skurð og aðrar 5.000 kr. ef við forritum hann (óafturkræft).

Spurningar? Hringdu 510-8888 eða líttu við á Skemmuvegi 4, Kópavogi (blá gata, fyrir neðan BYKO).

Hringdu 510-8888
Til baka í Vörur