Læsingar, sílindrar & raflásar

Ávalir, euro-/prófílsílindrar, smekklásar, skápalásar og snjalllásar.

Læsingar, sílindrar & raflásar, mynd

Til eru margar gerðir læsinga og sílindra. Algengastar eru ávalir sílindrar og euro-/prófílsílindrar. Ef þú ert í vafa máttu taka mynd af núverandi læsingu og koma með í verslunina eða senda okkur.

Ávalir sílindrar

Með ávala þarf yfirleitt ekki að mæla, nýjum sílinder er bara skellt í (oft má nota sömu skrúfur). Ef gamli sílinderinn stóð mikið út fyrir róshettuna getur verið gott að fá þykkari róshettu. Ávala má fá í lokuðu lyklakerfi (kort eða skráður ábyrgðarmaður).

Euro-/prófílsílindrar

Algengir inn í íbúðir á stigagangi. Taktu mynd af læsingunni með málbandi við lásinn svo við sjáum lengd/dýpt, hurðir eru misþykkar og læsingarnar ekki alltaf samhverfar um miðju. Fást fyrir lykil báðum megin, eða lykil að utan og sneril að innan, oft í nokkrum litum. Einnig fást smekklás-sílindrar, „snowman“-sílindrar fyrir hengilása, skápalásar og póstkassalæsingar.

Raflásar / snjalllásar

Við seljum m.a. Danalock, „snerill“ sem settur er innan á hurðina og virkar yfir Bluetooth. Opnaðu með símanum; með Danabridge má opna hvaðan sem er úr heiminum, og Danapad gefur veðurþolið takkaborð utan á (hentar vel fyrir Airbnb). Þú getur gefið tímastilltan aðgang og séð hvenær lásinn er notaður.

Kostur Danalock er að það má alltaf nota lykil í sílinderinn að utan ef rafhlöður klárast, og lásinn lætur vita áður en þær tæmast. Hann er settur þar sem snerillinn var áður, svo yfirleitt þarf ekki að breyta hurðinni.

Spurningar? Hringdu 510-8888 eða líttu við á Skemmuvegi 4, Kópavogi (blá gata, fyrir neðan BYKO).

Hringdu 510-8888
Til baka í Vörur